Wednesday 29 April 2009

Komin heim !!

Þá erum við komin heim frá Feneyjum, þetta var æðisleg ferð og ekki skemmdi veðrið fyrir, mæli alveg með því að kíkja þangað - setti inn eitthvað af myndum á Facebook.

Við erum búin að bæta á tónleikadagskrána okkar :)
27 júní förum við á Hard Rock Calling í Hyde Park og erum við fyrst og fremst að fara þangað til að sjá Fleet Foxes og svo verður Neil Young, Ben Harper & Relentless7, Seasick Steve og The Pretenders líka að spila.
4 júlí förum við svo á James Morrison - hann er algjört æði og er nýja platan hans geðveik.

Annars er allt mjög gott að frétta af okkur og eru sumargestirnir farnir að boða komu sína og eru fyrstu á leiðinni, Stebbi og Siggi koma á mánudaginn og verða hjá okkur í 2 daga - hlökkum að sjálfsögðu til að fá þá.

Þangað til næst
Ásta

1 comment:

  1. Boj boj boj Ásta ég sá að Amy vinkona okkar var að hætta við tónleikana....

    Ekkert smá fúllt :( En annars er ég búin að vera að reyna að hringja til þín og næ aldrei á þig skvís...

    Hlakka til að heyra í þér, við verðum að fara að plana eitthvað skemmtilegt það eru bara 2 vikur þangað til við komum :)

    xx Gyða

    ReplyDelete