Wednesday 8 April 2009

Arsenal og Feneyjar

Góð úrslit í Meistaradeildinni í kvöld. Arsenal náði góðum úrslitum og Man U vondum. Ég ætla samt ekki að veðja á móti þeim rauðu frá Manchester, þeir taka Porto 1-2 í Portúgal. Mikið vona ég samt að þeir tapi...

Annars erum við að fara í páskafrí á morgun, til Feneyja. Við hlökkum ótrúlega til að fara þangað enda er þetta víst einstakur staður. Það eru t.d. engir bílar á eyjunni, bara gondólar, þ.a. þegar maður fer í taxa þá er það ekki bíll heldur bátur. Mig hefur alltaf langað að koma til Ítalíu og mig rennir í grun að þetta sé ekki sísti staðurinn á stígvélinu, sérstaklega í ljósi jarðskjálftanna sem urðu þar í gær.

Að lokum biðst ég afsökunar á lengd síðustu færslu, ég missti mig aðeins í gleðinni. Góðar stundir, meira síðar.

1 comment:

  1. Þið munið að kyssast undir hverri brú :) Hafið það rosalega gott ... ég er ekkert öfundsjúk neinei!!!!

    ReplyDelete